Vandræðalegast við pissuskálarnar

Leikarinn Brad Pitt segir hlutina eins og þeir eru í …
Leikarinn Brad Pitt segir hlutina eins og þeir eru í nýlegu viðtali við kynningu kvikmyndarinnar Once Upon a Time in Hollywood. mbl.is/AFP

Leikararnir Brad Pitt og Margot Robbie voru í skemmtilegu viðtali við Heat nýverið þar sem þau ræddu m.a. kvikmyndina Once Upon a Time in Hollywood sem frumsýnd verður á næstunni. 

Þáttastjórnandi spurði leikarana hvar væri vandræðalegast að vera frægur og hitta almenning. Pitt var á því að versti staðurinn væri á almenningssalerni við pissuskálarnar. Þá langi hann ekki að heilsa neinum. 

„Sér í lagi vil ég ekki heilsa fólki með handabandi þar.“

Margot Robbie tók undir með Pitt og sagðist lengi vel hafa velt því fyrir sér hvernig væri að vera karlmaður þegar kemur að þessum hlutum. Hvort þeir ræddu saman þegar þeir stæðu saman að pissa. 

„Ég reyni að gera það ekki,“ segir Pitt.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler