Sleikir sárin á barnum

Liam Hemsworth sleikir sárin á barnum í Ástralíu.
Liam Hemsworth sleikir sárin á barnum í Ástralíu. AFP

Sást til leikarans Liam Hemsworth ásamt vinum sínum á bar í heimalandi sínu, Ástralíu, um helgina. Hemsworth og tónlistarkonan Miley Cyrus bundu enda á hjónaband sitt fyrir viku, en þau höfðu aðeins verið gift í 7 mánuði. 

Hemsworth hefur verið í Ástralíu síðan tilkynnt var um skilnað þeirra, en sást til hans á brimbretti ásamt bróður sínum, leikaranum Chris Hemsworth, í vikunni fyrir. Cyrus var í fríi í Evrópu á þeim tíma en er komin aftur til Los Angeles og búin að gefa út eitt lag síðan þá.

Skilnaður virðist vera umfjöllunarefni nýja lagsins sem Cyrus gaf út. Hemsworth hefur verið þögulli um skilnaðinn en hann óskaði henni alls hins besta í færslu á Instagram og bætti við að hann myndi ekki tjá sig nánar um málið í fjölmiðlum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler