Nafn komið á nýju Bond-myndina

Daniel Craig.
Daniel Craig. AFP

Nýjasta kvikmyndin um njósnara hennar hátignar, James Bond, mun heita No Time To Die og kemur hún í bíó í apríl á næsta ári.

Framleiðendur myndarinnar greindu frá þessu í dag.

Þetta verður 25. myndin um breska njósnarann og sem fyrr verður Daniel Craig í aðalhlutverkinu. Óskarsverðlaunahafinn Rami Malek mun leika helsta ilmenni myndarinnar.

Nokkuð hefur gengið á við tökur á myndinni. Í júní varð sprenging á tökustað sem hafði í för með sér skemmdir á leikmyndinni, auk minniháttar meiðsla.

Craig þurfti einnig að gangast undir minniháttar aðgerð á ökkla eftir að hafa meiðst í tökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant