Bloom vill ekki skilja aftur

Orlando Bloom og Katy Perry.
Orlando Bloom og Katy Perry. AFP

Leikarinn Orlando Bloom segir í viðtali við Sunday Today with Willie Geist að hann vilji ekki skilja aftur. Bloom og unnusta hans tónlistarkonan Katy Perry ætla að ganga í það heilaga á næstu misserum.

„Það er mér mikilvægt að við séum á sömu blaðsíðu. Ég hef verið giftur og skilið og ég vil ekki gera það aftur. Og við vitum það bæði. Hún er ótrúleg og ég er alltaf jafn dolfallinn af því og það hvetur mig áfram,“ segir Bloom. 

Bloom var giftur fyrirsætunni Miröndu Kerr á árrunum 2010 til 2013. Þau eiga saman einn son. Perry var gift uppistandaranum Russell Brand á árunum 2010 til 2012. 

Bloom og Perry hafa verið í sambandi frá árinu 2016 og trúlofuðust þann 14. febrúar síðastliðinn, eða á Valentínusardag.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason