Bótox í handakrikana heimskulegt

Zoe Kravitz er ekki að fara að fá sér bótox …
Zoe Kravitz er ekki að fara að fá sér bótox í handakrikana á næstunni. mbl.is/AFP

Leikkonan Zoe Kravitz mun ekki fá sér bótox í handakrikana á næstunni ef marka má viðtal við hana í Vogue á dögunum. Kravitz er spurð út í fegurðarráð bæði góð og slæm í viðtalinu. Segist hún vera í áfalli við að heyra af bótoxi sem kemur í veg fyrir svitamyndun. 

„Það er það heimskulegasta, ógnvænlegasta sem ég hef nokkurn tímann heyrt,“ sagði leikkonan og hvetur fólk til þess að láta ekki verða að því að fá sér bótox til að koma í veg fyrir svita. Segir hún mikilvægt að svitna. 

Þessi nýstárlega leið til að koma í veg fyrir svita komst í fréttir á dögunum þegar fyrirsætan og samfélagsmiðlastjarnan Chrizzy Teigen greindi frá því að hún hefði fengið sér bótox í handakrikana. 

Teig­en sýndi frá því á samfélagsmiðlum þegar hún fékk sér bótox í handakrik­ana til að minnka svita­mynd­un. Teig­en var mjög spennt í mynd­band­inu og sagði að þetta væri það besta sem hún hafði gert. Nú seg­ist hún geta klæðst silki án þess að vera renn­andi sveitt.

Chrissy Teigen fékk sér bótox í handakrikana.
Chrissy Teigen fékk sér bótox í handakrikana. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson