Beckham hættur með kærustunni?

Brooklyn Beckham er sagður hættur með Hönu Cross.
Brooklyn Beckham er sagður hættur með Hönu Cross. mbl.is/AFP

Erlendi slúðurvefurinn Daily Mail heldur því fram að elsti Beckham-sonurinn, Brooklyn Beckham, sé hættur með kærustu sinni, fyrirsætunni Hönu Cross. Brooklyn Beckham hefur ekki sést opinberlega með Cross síðan um miðjan júlí.

Cross sást gjarnan á samfélagsmiðlum hjá öðrum í Beckham-fjölskyldunni en hefur ekki verið á ferðalagi með þeim í sumar. Virtist hún til að mynda ekki vera með fjölskyldunni á Ítalíu á dögunum. Heimildarmaður Daily Mail segir parið vera hætt saman eftir átta mánaða samband. 

Brooklyn Beckham og Cross eru sögð fylgja hvort öðru á Instagram en Beckham-sonurinn hefur þó ekki líkað við mynd af Cross síðan í lok júlí og á það sama við um fjölskyldu hans. 

Parið komst í fréttir í maí þegar öryggisverðir þurftu að stía parinu í sundur. Voru David og Victoria Beckham þá sögð með áhyggjur af „eitruðu sambandi“ sonar síns við fyrirsætuna. 

Brooklyn Beckham og Hana Cross.
Brooklyn Beckham og Hana Cross. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson