Kærasti Spears sér fram á brúðkaup

Britney Spears og Sam Asghari í sumar.
Britney Spears og Sam Asghari í sumar. mbl.is/AFP

Sam Asghari, kærasti Britney Spears, opnaði sig um lífið með poppprinsessunni í viðtali við ET. Hann segir þau vera fjölskyldu og hjónaband sé á stefnuskránni hjá parinu. 

„Algjörlega,“ sagði Asghari þegar hann var spurður hvort hann sæi fram á að giftast Spears einn daginn. „Það ættu öll pör að gera. Það er það sem skiptir mestu máli í sambandi, við erum fjölskylda.“

Fyrir stuttu sást Spears með stóran demantshring en þau eru þó ekki líkleg til þess að fara leynt með brúðkaup ef þau ákveða að gifta sig ef marka má orð Asgharis. 

„Trúðu mér; ef við giftum okkur einn daginn þá munu allir vita það.“

Sam Asghari.
Sam Asghari. mbl.is/AFP

Asghari og Spears kynntust þegar hann lék í tónlistarmyndbandi Spears við lagið Slumber Party. Fimm mánuðum seinna hringdi Spears í hann og spurði hvort hann vildi hitta sig og borða með sér sushi. 

Fjölskyldan skiptir Asghari miklu máli en hann fæddist í Íran. Asghari kemur vel saman við syni Spears og fjölskylda hans er hrifin af henni. „Við höfum verið saman í þrjú ár og systur mínar elska hana. Mamma mín býr í öðru landi en þegar hún var hér hitti hún hana.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant