Meghan fór ein til þess að styðja vinkonu

Meghan fór í stutta helgarferð til New York.
Meghan fór í stutta helgarferð til New York. mbl.is/AFP

Meghan hertogaynja flaug til New York í morgun, föstudag, til þess að styðja vinkonu sína, Serenu Williams, í úrslitum í einliðaleik á opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Harry Bretaprins og hinn fjögurra mánaða gamli Archie urðu eftir að því fram kemur á vef Times. 

Meghan er sögð hafa ákveðið að fara þessa stuttu helgarferð með litlum fyrirvara og segir heimildarmaður Times hana spennta að styðja vinkonu sína og snúa síðan heim. 

Harry og Meghan hafa verið gagnrýnd fyrir að fljúga með einkaþotum. Meghan flaug hins vegar til New York með venjulegu áætlunarflugi. Aðrir starfsmenn hjónanna en öryggisverðir eru ekki sagðir hafa verið með í för. 

Meghan fylgist vel með tennisvinkonu sinni hér er hún ásamt …
Meghan fylgist vel með tennisvinkonu sinni hér er hún ásamt Katrínu hertogaynju á Wimbledon-mótinu í sumar. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant