Tónlistarkonan Britney Spears er komin með nýjan tímabundinn forráðamann, en nýi forráðamaðurinn er Jodi Montgomery. Montgomery er umboðsmaður Spears og hefur verið síðastliðið ár.
Pabbi Spears, Jamie Spears, var forráðamaður hennar en óskaði eftir að dómari skipaði nýjan forráðamann yfir dóttur sinni vegna heilsufarsáðstæðna. Montgomery hefur forræði yfir Spears til 31. janúar 2020 og þá getur Jamie fengið það aftur.
Dómari mun í næstu viku fara yfir sjúkrasögu söngkonunnar og skoða hvort hún hafi hlotið viðeigandi meðferð síðustu ár. Læknirinn hennar, Timonthy Benson, lést skyndilega 24. ágúst síðastliðinn og flækir það málin.
Niðurstaða dómara getur haft áhrif á hvort faðir hennar fær forræðið aftur. Jamie Spears er einnig í rannsókn lögreglu fyrir að leggja hendur á 13 ára gamlan son Britney og fyrrverandi eiginmanns hennar Kevins Federlines, Sean.
Verði hann fundinn sekur geta Federline og Lynne Spears, mamma Britney, reynt að fá því breytt að Jamie fái aftur forræði yfir Britney.