Fimmtug hljómsveit mætir í ýkt „tjill“

Tangerine Dream er ein þekktasta hljómsveitin sem fram kemur á …
Tangerine Dream er ein þekktasta hljómsveitin sem fram kemur á hátíðinni þetta árið. Hljómsveitin hefur lifað tímana tvenna en enginn upprunalegra meðlima spilar með henni í dag. Ljósmynd/Bianca Froese-Acquaye

Öll flóran í raftónlistarsenunni stendur gestum Extreme Chill festival, fjögurra daga raftónlistarhátíðar sem hefst í Reykjavík tólfta september, til boða. Markmið hátíðarinnar er að koma á tengslum milli íslenskra og erlendra tónlistarmanna, að sameina ólík listform, allt frá raftónlist til sjónlista og draga athygli að Reykjavík, sem skipuleggjendur hátíðarinnar kalla raftónlistarhöfuðborg Íslands.

„Við eigum núna tíu ára afmæli og þarna verður náttúrlega bara góð blanda af alls konar listafólki, mikið af tilraunakenndri tónlist og hughrifatónlist (e. ambiance music). Svo erum við líka með viðburði sem standa alveg til fjögur, hálffimm á nóttunni þar sem farið er meira út í dansvæna tónlist,“ segir Pan Thorarensen skipuleggjandi hátíðarinnar.

„Sögulegur viðburður“

Aðalnúmerið á hátíðinni í ár er þýska hljómsveitin Tangerine Dream sem fæddist á sjöunda áratugnum og er enn starfandi. Enginn upphaflegra meðlima er í hljómsveitinni eins og hún er í dag en Tangerine Dream heldur þó sama hljómnum. Hljómsveitin treður upp í Gamla bíói og verður bæði hægt að komast inn á tónleikana með hátíðararmbandi og stökum miðum sem gilda eingöngu á þá tónleika.

„Þetta verður sögulegur viðburður og það er ótrúlega magnað að fá þau til landsins. Ef eitthvað þá er það sem þau eru að senda frá sér núna með því betra sem maður hefur heyrt með Tangerine Dream. Efnið þeirra er svo ferskt og unga fólkið er núna að kveikja almennilega á þessu líka.“

Bandið skipa nú Ulrich Schnauss, sem Pan segir stórt nafn í raftónlistarsennunni, japanski fiðluleikarinn Hoshiko Yamane og Thorsten Quaeschning. „Thorsten er svo náttúrulega heilinn í bandinu. Edgar Froese [stofnandi Tangerine Dream sem nú er fallinn frá] velur Thorsten inn fyrir fimmtán árum og vill að hann verði arftakinn að bandinu.“

Með hljómsveitinni kemur heill her af fylgdarliði. „Bianca Froese, eiginkona Edgars Froese, kemur til landsins með þeim. Hún er sú sem heldur utan um þetta og er umboðsmaðurinn þeirra líka og sér um allt batteríið, að allt gangi upp. Fjórtán manns koma til landsins með hljómsveitinni, sjónlistamenn, hljóðmenn og ljósamenn þannig að þetta verður alveg stór viðburður.“

Hljómurinn í tónlist Tangerine Dream frá sjöunda áratugnum hljómar enn nokkuð ferskur í eyrum blaðamanns. Spurður hvort meira samhengi sé í raftónlist nútíðar og fortíðar en gengur og gerist innan annarra tónlistarstefna segir Pan:

„Já, ég myndi segja það. Raftónlistin helst svolítið í hendur, það er náttúrlega alltaf einhver þróun en grundvallaratriðin eru mjög svipuð, það hvernig fólk vinnur.“

Pan bætir því við að raftónlist sé nú farin að teygja sig inn í ýmis svið mannlífsins og tónlistarinnar.

„Ef maður pælir í því þá er eiginlega raftónlist í öllu í dag; auglýsingum, poppi, rokki og fleiru. Fyrir nokkrum árum mátti bara ekki tala um raftónlist, fólki fannst það rosalega skrýtið einhvern veginn.“

Pan segir Eraldo Bernocchi eina skærustu stjörnu Ítala í raftónlistarsenunni.
Pan segir Eraldo Bernocchi eina skærustu stjörnu Ítala í raftónlistarsenunni.

Skærasta stjarna Ítalíu

Pan nefnir Eraldo Bernocchi frá Ítalíu sérstaklega til sögunnar þegar hann er spurður um hápunkta hátíðarinnar.

„Hann er ein skærasta stjarna Ítala í þessari senu og hefur unnið og gefið út plötur með Harold Budd og Robin Guthrie  o.fl. Hann verður að spila með okkur í Stereo Hypnosis í Iðnó og við verðum með sérstakt spunasett þar.“ Eraldo Bernucchi mun einnig spila á Gauknum föstudaginn 13. september.

Pan mælir sömuleiðis með Marcus Fischer. „Hann er mjög stórt nafn í þessum geira. Svo kemur Spectro Duo frá Íran, þau eru mjög flott. Við vorum einmitt að koma frá Teheran [höfuðborg Írans] í síðasta mánuði. Þau eru líka með flotta hátíð í Teheran sem við erum í samstarfi við.“

Pan Thorarensen, skipuleggjandi Extreme Chill Festival.
Pan Thorarensen, skipuleggjandi Extreme Chill Festival. mbl.is/Þórður

Eins og áður verður hluti tónleika hátíðarinnar djassskotinn.

„Einn hátíðardagurinn er fullur af lifandi djasstónlist. Þar koma fram allir þessir ungu íslensku djassarar, Magnús Tryggva og ADHD, Magnús Jóhann hljómborðsleikari, Ingibjörg Turchi og Tumi Árnason saxófónleikari. Tónleikarnir fara fram á Exeterhóteli laugardaginn 14. september, frá klukkan tvö til fimm. Frítt verður inn og allir velkomnir.“

Extreme Chill Festival er hluti af Up Node Network, norrænu samstarfi með öllum helstu raftónlistarhátíðum Norðurlandanna. „Þetta eru allar þessar ungu tilraunakenndu hátíðir sem kynna unga listamenn.“

Þannig kemur það meðal annars til að íslenska tónlistarkonan Special-K og norska tónlistarkonan Farao spila saman á Extreme Chill Festival.

„Farao hefur spilað á Iceland Airwaves og unnið eitthvað með Sindra Sin Fang og Jófríði. Þetta er verkefni sem við erum með í samstarfi við Insomnia-hátíðina í Tromsø en þær munu spila þar saman í október,“ segir Pan.

Extreme Chill Festival var fyrst haldin í smáum sniðum á Hellissandi árið 2010. Hún hefur síðan þá verið haldin víða um land og einnig í Berlín. Í ár er hátíðin stærri en áður hefur verið og sex tónleikastaðir í miðborginni verða undirlagðir af hlýjum raftónlistarstraumum: Gamla Bíó, Iðnó, Gaukurinn, Mengi, Hótel Exeter og Klaustur bar.

Miðar á hátíðina fást á midi.is og er að finna nánari upplýsingar um hana á www.extremechill.org.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson