Hótaði að drepa ólétta eiginkonu bróður síns

Aaron Carter er sagður hafa hótað óléttri eiginkonu bróður síns …
Aaron Carter er sagður hafa hótað óléttri eiginkonu bróður síns lífláti. Skjáskot/Instagram

Backstreet Boys-söngvarinn Nick Carter hefur fengið tímabundið nálgunarbann gegn bróður sínum, Aaron Carter, fyrir sig og eiginkonu sína eftir að hann hótaði að drepa hana og ófætt barn þeirra. 

Aaron segist hafa orðið hissa á ásökununum og segist ekki vilja valda neinum skaða, sérstaklega ekki fjölskyldu sinni. BBC greinir frá.

„Eftir að hafa íhugað málið vandlega höfum við Angel systir mín ákveðið að óska eftir nálgunarbanni gegn bróður okkar Aaron,“ sagði Nick Carter í gær þriðjudag. 

„Í ljósi ógnvekjandi hegðunar hans og þeirrar játningar hans að hann hugsi um að drepa ólétta eiginkonu mína og ófætt barn okkar höfum við engra kosta völ til þess að tryggja öryggi okkar og fjölskyldunnar. Við elskum bróður okkar og vonum innilega að hann sæki sér þá hjálp sem hann þarf áður en hann skaðar sjálfan sig eða aðra,“ sagði Nick.

Aaron staðfesti nálgunarbannið á samfélagsmiðlum en neitaði að hafa sýnt ógnandi hegðun í garð þeirra. „Hafðu það gott, Nick Carter. Við þurfum ekki að eiga samskipti aftur í lífinu,“ sagði Aaron. Hann hefur glímt við bæði fíkni- og geðsjúkdóma í gegnum árin. 

Í nýlegum þætti af The Doctors sagðist Aaron vera með persónuleikaröskun, geðklofa, ofsakvíða og þunglyndi.

Seinna sagði hann að það amaði ekkert að sér og þátturinn hefði verið klipptur þannig til að hann liti út fyrir að vera veikur, sem framleiðendur þáttanna neituðu.

Nick Carter hér með félögum sínum úr Backstreet Boys. Howie …
Nick Carter hér með félögum sínum úr Backstreet Boys. Howie Dorough, Nick Carter, Brian Littrell, AJ McClean og Kevin Richardson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant