Jenner og Scott taka sér pásu frá hvort öðru

Kylie Jenner og Travis Scott eru í pásu.
Kylie Jenner og Travis Scott eru í pásu. AFP

Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner og tónlistarmaðurinn Travis Scott hafa tekið sér pásu frá hvort öðru og ætla að eyða tíma í sundur. 

Samkvæmt heimildarmanni TMZ hafa þau reynt að vinna í sambandi sínu síðustu mánuði en illa hefur gengið og því hafa þau ákveðið að taka sér pásu. 

Jenner og Travis komu síðast saman fram opinberlega á frumsýningu heimildarmyndar Scott, Travis Scott: Look Mom I Can Fly, 27. ágúst. Jenner birti síðast mynd af Scott á samfélagsmiðlum 10. september. 

Þau eiga eina dóttur saman, Stormi, sem er eins og hálfs árs, en þau hafa verið saman í rúmlega tvö ár. Scott fylgdi ekki Jenner í brúðkaup Bieber-hjónanna á mánudagskvöld, en en hún tók dóttur þeirra með í brúðkaupið.

Þau eru sögð hafa tekið sér pásu áður og aftur byrjað saman. Þau ætla að einblína á dóttur sína núna og vinna saman að uppeldi hennar. 

Scott og Jenner ætla að ala dóttur sína upp saman.
Scott og Jenner ætla að ala dóttur sína upp saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant