Leikkonunni Angelinu Jolie fannst fyrrverandi eiginmaður hennar pressa á hana að ganga í hjónaband með sér.
Að sögn heimildarmanns Us Weekly ætlar hún aldrei aftur að ganga í hjónaband og nýtur þess að vera einhleyp. Heimildarmaðurinn segir Jolie aldrei hafa viljað ganga í hjónaband yfir höfuð.
Jolie og Pitt byrjuðu fyrst saman árið 2006. Þau giftu sig árið 2014 en hættu saman aðeins tveimur árum seinna. Skilnaðurinn er ekki enn kominn í gegn, en þau eru lagalega einhleyp síðan í apríl á þessu ári. Þau eiga 6 börn saman, Maddox, Pax, Zahara, Shiloh, Knox og Vivienne.