„Þegar Cameron bauð mér hlutverkið sagði hann „Ókey hlustaðu, ég þarf ekki neinn. Ég þarf ekki þekkt nafn fyrir þetta, þekktan leikara. Ef þú vilt þetta ekki finn ég einhvern óþekktan leikara og gef honum hlutverkið, því að þessi mynd þarf þig ekki“,“ sagði Damon.
Á endanum fékk ástralski leikarinn Sam Worthington aðalhlutverkið í myndinni og öðlaðist nokkra frægð í kjölfarið. Damon segist ekki sjá eftir peningunum sem hann hefði getað fengið fyrir hlutverkið heldur að hafa misst af tækifærinu að vinna með Cameron.
„Ég fattaði að fyrst ég þurfti að segja nei var ég örugglega að segja nei við tækifærinu til þess að vinna með Cameron í framtíðinni. Þannig að það var ömurlegt,“ sagði Damon.