12 upprennandi söngsnillingar keppa í söngvakeppninni Jólastjarnan 2019 þar sem Auður, Birgitta Haukdal og Björgvin Halldórsson eru dómarar. Þættirnir verða sýndir í Sjónvarpi Símans í desember og sigurvegarinn syngur á stóra sviðinu með landsliði söngvara og hljóðfæraleikara á tónleikunum Jólagestir Björgvins sem fara fram í Eldborg Hörpu.
Svona virkar umsóknarferlið:
Þátttakendur syngja lag að eigin vali og senda inn tengil á YouTube-myndband af söngnum, lagið má vera hvaða lag sem er og eftir hvern sem er.
Sérstök dómnefnd velur þá tólf söngvara sem standa sig best og boðar í prufur. Í fyrstu tveimur þáttunum koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn kynntur.
Keppnin er fyrir 14 ára og yngri. Allir þátttakendur þurfa leyfi forráðamanna.
Vinningshafi syngur svo lag á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins í desember.
Hér að neðan má sjá sigurvegarann frá því í fyrra, Þórdísi Karlsdóttur: