Aniston fylgir fyrrverandi á Instagram

Jennifer Aniston og Justin Theroux.
Jennifer Aniston og Justin Theroux. AFP

Leikkonan Jennifer Aniston er búin að skrá sig á Instagram, en hingað til hefur hún ekki verið með opinberan aðgang. Það hefur vakið athygli að hún fylgdi fyrrverandi eiginmanni sínum Justin Theroux strax á forritinu. Aniston og Theroux voru gift á árunum 2015-2017. 

Aniston setti inn mynd af sér og mótleikurum sínum úr þáttunum vinsælu Friends og skrifaði „Núna erum við líka Instagram VINIR.“

Mikil fagnaðarlæti hafa brotist út í athugasemdakerfinu og hafa bæði stjörnur og aðrir aðdáendur boðið hana velkomna. Theroux var fyrstur til að bæta við athugasemd en hann skrifaði „Woot! Woot! #first“ við myndina. Á um klukkustund er leikkonan komin með 133 þúsund fylgjendur og má ætla að talan hækki hratt á næstu dögum. 

Vinkona hennar og mótleikkona Courteney Cox er virk á samfélagsmiðlum og birtir reglulega myndir þegar þær hittast. Allir leikararnir úr Friends hittust nú fyrir skömmu til að fagna 25 ára afmæli þáttanna og er myndin sem Aniston birti úr því partýi.

View this post on Instagram

And now we’re Instagram FRIENDS too. HI INSTAGRAM 👋🏻

A post shared by Jennifer Aniston (@jenniferaniston) on Oct 15, 2019 at 6:03am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson