Frank Hvam berar rassinn í nýrri auglýsingu fyrir þriðju og síðustu kvikmyndina af Klovn, Klovn 3. Á afturenda Franks er myndarlegt húðflúr en þar stendur „Enden er nær“ eða „Endalokin nálgast“.
Þriðja og síðasta kvikmyndin í þríleik þeirra Franks og Caspers Christiansen verður frumsýn í byrjun árs 2020. Kvikmyndin mun fjalla um fimmtugsafmæli Franks og verður leikstýrt af Mikkel Norgaard.
Klovn-myndirnar hafa valdið usla á samfélagsmiðlum með auglýsingum í gegnum árin. Sérstaklega er minnisstætt þegar auglýsing af þeim félögum í kynlífstellingunni 69 var bönnuð af Facebook árið 2010. Facebook bannaði einnig mynd af Frank nöktum í rósablöðum og Casper nöktum umvöfðum konum.