Leikkonan Salma Hayek er kannski komin yfir fimmtugt en kann svo sannarlega að ná sér í „like“ og stóran fylgjendahóp á Instagram. Stjarnan þakkaði fylgjendum sínum fyrir að fylgja sér með því að birta mynd af sér í nálastungu en Hayek virtist vera nakin á myndinni.
Hayek var að fagna því að hún er komin með 12 milljónir fylgjenda.
„Ég er þakklát fyrir ást og stuðning ykkar allra. Jeeej!!! Þið hafið komið mér upp í 12 milljónir!!!“ Skrifaði Hayek og tók einnig fram að ein nál táknaði eina milljón fylgjenda.
Á myndin líklega aðeins eftir að auka vinsældir Hayek og var hún komin með yfir 700 þúsund „like“ á innan við sólarhring.
View this post on InstagramA post shared by Salma Hayek Pinault (@salmahayek) on Oct 14, 2019 at 8:02am PDT