Laddi undirbýr dauðann á sinn hátt

Jarðarförin mín er ljúfsár en alvörugefin grínsería með Þórhalli Sigurðssyni í aðalhlutverki. Hún fjallar um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi. Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða.

Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin gala jarðarför og vera sjálfur viðstaddur. Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.

Handritshöfundar eru Kristófer Dignus, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Sólmundur Hólm, Baldvin Zophoniasson, Ragnar Eyþórsson og Jón Gunnar Geirdal. Tökur á þáttaröðinni hefjast í byrjun nóvember og er hún væntanleg í Sjónvarp Símans Premium á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson