Eiginmaður Deschanel sækir um skilnað

Zooey Deschanel er komin með nýjan.
Zooey Deschanel er komin með nýjan. AFP

Jacob Pechenik, eiginmaður leikkonunnar Zooey Deschanel, hefur sótt um skilnað. Pechenik og Deschanel hafa verið gift í fjögur ár, en skildu að borði og sæng í janúar. 

Þau eiga tvö börn saman, hina 4 ára gömlu Elise og hinn tveggja ára gamla Charlie. Pechenik óskar eftir að þau deili forræði yfir börnunum. 

Þetta er annar skilnaður leikkonunnar sem er hvað best þekkt fyrir hlutverk sitt sitt í þáttunum New Girl. Hún skildi við tónlistarmanninn og liðsmann hljómsveitarinnar Death Cab for Cutie, Ben Gibbard, í ársbyrjun 2012. 

Deschanel er nú þegar komin með nýjan kærasta, leikarann Jonathan Scott, en hún birti mynd af þeim saman á Instagram á mánudag. 

View this post on Instagram

Still processing how scared I was of these people dressed in spooky masks. @unistudios @horrornights #UniversalHHN

A post shared by Zooey Deschanel (@zooeydeschanel) on Oct 20, 2019 at 7:01pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler