Hverju hefur lögfræðibrölt Kardashian West skilað?

Kim Kardashian West talar fyrir fullu húsi í Hvíta húsinu …
Kim Kardashian West talar fyrir fullu húsi í Hvíta húsinu 14. júní síðastliðinn. AFP

Kim Kardashian West hefur marga titla. Hún er raunveruleikaþáttastjarna, hönnuður aðahaldsfatnaðar, ilmvatns og snyrtivöruhönnuður og síðast ekki ekki síst lögfræðinemi.

Nú á dögunum fagnaði hún 39 ára afmæli sínu og í afmælisgjöf gaf eiginmaður hennar, Kanye West, eina milljón bandaríkjadala til hennar uppáhalds góðgerðarstofnana. Allar góðgerðarstofnanirnar eiga það sameiginlegt að tengjast fangelsismálum á einn eða annan hátt. 

Í eitt og hálft ár hefur hún, ásamt teymi lögfræðinga tekið að sér mál fanga og oftar en ekki fengið þá lausa úr haldi. En hvernig velur hún málin, hverjir eru svo heppnir að njóta athygli hennar og af hverju er hún að þessu?

Á Met Gala í maí.
Á Met Gala í maí. AFP

Kardashian West er ekki með háskólamenntun, en hóf nám í lögfræði sumarið 2018. Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna þarf ekki að fara hina hefðbundnu leið til þess að starfa við lögin. Kardashian West er á samningi hjá lögfræðistofu í San Francisco og vinnur 18 tíma á viku undir handleiðslu lögmanns. Hún tekur reglulega próf á netinu og hefur gengið vel. Hún stefnir á að fá lögmannsréttindin árið 2022. 

Hún hefur áhugann á lögfræði ekki langt að sækja en faðir hennar heitinn, Rob Kardashian, var áhrifa mikill lögfræðingur í Los Angeles á síðustu áratugum 20. aldarinnar. Hann var meðal annars lögfræðingur fótboltakappans fyrrverandi O.J. Simpson.

Á fundi með Trump í júní 2018.
Á fundi með Trump í júní 2018. Mynd/@realDonaldTrump

Heimsókn til Trumps

Það kom eflaust mörgum á óvart þegar raunveruleikastjarnan fundaði með forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, í maí 2018. Þau ræddu endurbætur á aðstöðu fanga og um mál tiltekins fanga, langömmunnar Alice Marie Johnson. Johnson hlaut lífstíðardóm í fangelsi fyrir minniháttar fíkniefnabrot fyrir tugum ára. Trump náðaði hana og er hún nú frjáls ferða sinna.  

Þetta var fyrsta málið sem Kardashian West hafði afskipti af og naut mikillar athygli. Hún hefur ekki setið auðum höndum síðan. Í byrjun júní á þessu ári heimsótti hún aftur forsetan heim og talaði þar á fundi um endurbætur á aðstöðu fanga. Hún kynnti nýja aðstoð við fanga sem losnað hafa nýlega úr fangelsi og þá sem munu losna fljótlega úr fangelsi. Sú þjónusta er í samstarfi við akstursþjónustuna Lyft og felur í sér að nýlausir fangar geta óskað eftir akstri í atvinnuviðtöl og önnur viðtöl sem þeir þurfa að fara í til þess að komast aftur út í samfélagið.

Í Hvíta húsinu.
Í Hvíta húsinu. AFP

Í þættir af raunveruleikaþætti fjölskyldunnar í maí útskýrði hún fyrir mömmu sinni hvernig hún velur málin sem hún beitir sér fyrir. Hún byrjar á að lesa yfir þau fjölda mörgu bréf sem henni berst. „Ef ég sé eitthvað sem mér finnst eiga góðu möguleika og hreyfir við mér, þá sendi ég það til lögfræðinga minna sem skoða það og athuga hvort allt sé með feldu,“ sagði Kardashian West. 

Fyrrverandi fanginn Paul Algrain var einnig svo heppinn að njóta aðstoðar Kardashian West. Hann losnaði út fangelsi í Norður-Karólínu-ríki í apríl eftir 7 ára fangelsisvist. Al­grain skrifaði bréf til Kar­dashi­an fyrr á ár­inu þegar hann frétti af því að hún vildi breyta fang­elsis­kerf­inu í Banda­ríkj­un­um

Heimsókn á dauðadeild

Í maí á þessi ári deildi Kardashian West gleði fréttum með aðdáendum sínum. Fanginn Jeffrey var laus úr haldi vegna atbeina hennar. Hann var einnig dæmdur til áralangrar fangelsisvistar fyrir minniháttar brot. Kardashian West deildi mynd af Jeffrey og fjölskyldu hans. 

Það var ekki það eina sem Kardashian West gerði í maí. Hún mætti til að mynda stórglæsileg á Met Gala og lét sauma sig inn í níðþröngt lífstykki. Hún heimsótti líka fangann Kevin Cooper á dauðadeildinni í San Quentin-fangelsinu í norður Kaliforníu. 

Kardashian West í heimsókn á dauðadeildinni hjá Kevin Cooper.
Kardashian West í heimsókn á dauðadeildinni hjá Kevin Cooper. skjáskot/Twitter

Cooper hef­ur beðið dauða síns á dauðadeild­inni í San Qu­ent­in síðan 1983 en hann var dæmd­ur fyr­ir að verða fjór­um mann­eskj­um að bana. Kar­dashi­an hef­ur unnið að máli hans síðustu mánuði og hvatt rík­is­stjóra Kali­forn­íu til að taka upp mál hans. Kar­dashi­an tel­ur Cooper hafa verið fórn­ar­lamb og ekki framið glæp­inn, en sjálf­ur hef­ur hann alltaf haldið sak­leysi sínu fram.

Á 90 dögum nú í vor hjálpaði Kardashian West og lögfræðingateymi hennar 17 föngum. Talan fer hækkandi og þótt mörgum finnist það ótrúlegt þá básúnar Kardashian West ekki öllum sigrum sínum á samfélagsmiðlum. 

Ekki allt sem Kardashian West snertir verður að gulli

En hendur Kardashian eru ekki guðlegar, þó stundum séu þær fótó-sjoppaðar, henni mistekst líka. Henni tókst ekki að hafa áhrif á mál Making a Murderer-stjörnunnar Brendan Dassey fyrr í þessum mánuði. Hún tók það mál þó ekki að sér en reyndi að hafa áhrif á það með að vekja athygli á því á samfélagsmiðlinum Twitter. 

Mál Dass­ey og Avery vakti mikla at­hygli árið 2015 í kjöl­far þátt­anna Mak­ing a Mur­d­erer sem aðgengi­leg­ir eru á Net­flix. Í þátt­un­um er Dass­ey lát­inn líta út fyr­ir að vera fórn­ar­lamb aðstæðna, en hann var 16 ára þegar hann var dæmd­ur. 

Kar­dashi­an West end­ur­tísti mynd af bréfi sem Dass­ey skrifaði til rík­is­stjór­ans og merkti Evers í færsl­una. Evers seg­ir að af­skipti Kar­dashi­an West af mál­inu muni eng­in áhrif hafa á meðferð máls­ins og að Dass­ey muni fá sömu meðferð og aðrir. Þá skipti ekki máli fylgj­enda­fjöldi Kar­dashi­an West á Twitter, 62 millj­ón­ir, eða hversu marga fanga hún hef­ur fengið lausa úr haldi. 

Corey Gamble, Kris Jenner, Kanye West, Kim Kardashian West, Kendall …
Corey Gamble, Kris Jenner, Kanye West, Kim Kardashian West, Kendall Jenner, Kylie Jenner og Travis Scott. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson