Venjulegt fólk selt til Ameríku

Þau Vala Kristín, Júlíana Sara, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst …
Þau Vala Kristín, Júlíana Sara, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst fara með aðalhlutverk í þáttunum Venjulegt fólk, sem fjallar um dramað í kringum lífsgæðakapphlaup tveggja vinkvenna. Mynd/Síminn

Þáttaröðin Venjulegt fólk sem hefur fengið frábærar viðtökur hér á landi í Sjónvarpi Símans er á leið vestur um haf. MHz Networks hefur keypt sýningarréttinn á þáttaröðinni sem mun fara í dreifingu í Bandaríkjunum. Mhz Networks er frjáls og óháður fjölmiðill sem hefur sýnt talsvert af efni sem kemur utan Bandaríkjanna.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir íslenska kvikmyndagerð en áhugi fyrir efni frá Norðurlöndunum hefur aukist stórkostlega á undanförnum árum,“ segja aðstandendur þáttanna í fréttatilkynningu.

Það er Glassriver sem framleiðir þættina í samstarfi við Símann en fyrirtækið er í eigu Baldvinz Z., Harðar Rúnarssonar, Arnbjargar Hafliðadóttur, Andra Óttarssonar  og Andra Ómarssonar.  

Með aðalhlutverk í þáttunum fara þær Vala Kristín, Júlíana Sara, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari Sveinssyni en hann leikstýrir einnig þáttunum. Þáttaraðirnar tvær af Venjulegu fólki eru sem fyrr segir aðgengilegar í Sjónvarpi Símans Premium. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson