Náði eiginmanni sínum vel

Jessica Biel náði eiginmanni sínum, Justin Timberlake, nokkuð vel eins …
Jessica Biel náði eiginmanni sínum, Justin Timberlake, nokkuð vel eins og myndir sem hún birti á Instagram sýna. Skjáskot/Instgram

Stjörnuhjónin Jessica Biel og Justin Timberlake tóku forskot á hrekkjavökuhátíðina um helgina og klæddu sig upp í búninga. Tókst leikkonunni afar vel til en hún klæddi sig upp sem eiginmaður hennar. Söngvarinn var hins vegar míkrófónn. 

„Þetta gerist þegar þú viðurkennir í sjónvarpi að þú kunnir ekki nein NSYNC-lög og þú ert gift Justin Timberlake. Vel spilað eiginmaður, vel spilað,“ skrifaði Biel við myndir á Instagram. 

Biel leit út eins og Justin Timberlake þegar hann var í NSYNC en strákabandið var vinsælt á árunum 1996 til 2002. Biel var í eins galla og Timberlake notaði á þessum árum og var með hárkollu sem leit út eins og hárgreiðslan sem hann skartaði í kringum aldamótin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson