Þorrablótsnefnd Kópavogsblótsins 2020 hefur ákveðið að bæta við 50 borðum, alls 600 miðum, á blótið sem fram fer í janúar. Seldist upp á blótið á aðeins 2 mínútum nú í morgun en miðasala hófst kl. 10 á Tix.is.
Ljóst er að færri komust að en vildu og lýstu margir yfir vonbrigðum yfir að hafa ekki getað keypt miða. Á skemmtunina fyrr á þessu ári mættu um 1.200 manns.
Blótið hefur verið fært úr Smáranum yfir í Fífuna. Borðin 50 sem bætt var við fara í sölu á Tix.is klukkan 16 í dag að því er fram kemur í Facebook-færslu Breiðabliks.