Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fór fram í liðinni viku og lauk glæsilegri dagskrá á laugardagskvöld.
Um 150 hljómsveitir komu fram á um 200 tónleikum á tugum tónleikastaða. Ljósmyndarar mbl.is fönguðu stemninguna á hátíðinni, sem sett hefur svip sinn á íslenskt tónlistarlíf í 20 ár.