Vetrarhátíð Hróksins og Kalak á Austur-Grænlandi

Horft yfir höfuðstað Austur-Grænlands, Tasiilaq.
Horft yfir höfuðstað Austur-Grænlands, Tasiilaq. Ljósmynd/Aðsend

Hrókurinn og Kalak standa fyrir Air Iceland Connect-vetrarhátíð í Tasiilaq og Kulusuk á Grænlandi dagana 13. — 20. nóvember. Tasiilaq sem er höfuðstaður Austur-Grænlands hefur verið mjög í fréttum á árinu vegna hörmulegs ástands í málefnum barna á svæðinu og margvíslegra félagslegra vandamála.

Stefán Herbertsson skákmaður í Hróknum.
Stefán Herbertsson skákmaður í Hróknum. Ljósmynd/Aðsend

Markmiðið með vetrarhátíðinni er að skapa gleðistundir á Austur-Grænlandi, en jafnframt munu leiðangursmenn hitta bæjarbúa og ræða leiðir til að auðga mannlífið hjá þessum næstu nágrönnum Íslendinga, samkvæmt fréttatilkynningu. 

„Leiðangursmenn eru Hrafn Jökulsson og Stefán Herbertsson. Hrafn hefur leitt skáklandnám Hróksins á Grænlandi frá upphafi árið 2003 auk þess að vera virkur í starfi Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands. Stefán er fv. formaður Kalak og upphafsmaður hins árlega sundkrakkaverkefnis, en þá er 11 ára börnum frá austurströndinni boðið til Íslands til að læra sund og kynnast íslensku samfélagi.

Ljósmynd/Aðsend

Hrafn og Stefán munu m.a. heimsækja grunnskólann, leikskólann, dvalarheimili aldraðra, sjúkrahúsið og fangelsið í Tasiilaq. Þá verða heimsótt heimili fyrir börn, sem ekki geta dvalið hjá fjölskyldum sínum, m.a. Prinsesse Margarethes Børnehjem og PITU-heimilið. Enn fremur munu leiðangursmenn funda með fulltrúum Rauða kross-deildarinnar í Tasiilaq, en Hrafn ánafnaði hluta af móðurarfi sínum til starfsemi deildarinnar.

Ljósmynd/Aðsend

Austur-Grænlendingar hafa lengi glímt við stórfelld vandamál á mörgum sviðum. Á gjörvallri austurströndinni búa aðeins rúmlega þrjú þúsund manns, langflestir á Ammassalik-svæðinu. Miðpunktur er Tasiilaq með tvö þúsund íbúa, en í grenndinni eru fimm þorp, m.a. Kulusuk. Atvinnuleysi á þessu svæði er yfir 20%, eða um þrefalt meira en í höfuðborginni Nuuk, og lífskjör eru helmingi lakari en í Nuuk. Austur-Grænlendingar eru í raun sérstök þjóð, með eigið tungumál, sögu og menningu, enda komust þeir ekki í kynni við umheiminn fyrr en árið 1885.

Hrafn Jökulsson ásamt grænlenskum skákmanni.
Hrafn Jökulsson ásamt grænlenskum skákmanni. Ljósmynd/Aðsend

Ástandið í skólamálum er ekki gott, einkum vegna þess að börn á Austur-Grænlandi fá námsefni á vesturgrænlensku, sem er þeim framandi. Þetta má bera saman við að börn á Íslandi fengju námsefni frá fyrsta degi á öðru tungumáli. Þetta veldur því m.a. að einkunnir barna á Tasiilaq-svæðinu eru mun lægri en á landsvísu, og sárafá ungmenni halda áfram námi eftir að skólaskyldu lýkur. Þá líða mörg börn fyrir vanrækslu og misnotkun, og kannanir umboðsmanns barna á Grænlandi hafa leitt í ljós að mörg börn á svæðinu fara svöng í háttinn. Síðast en ekki síst vekja tíð sjálfsvíg ungmenna á þessum stað óhug. Hvergi í heiminum eru sjálfsvíg tíðari en á Grænlandi, og hvergi á Grænlandi algengari en á austurströndinni.

Hrókurinn og Kalak hafa fyrst og fremst að leiðarljósi að auka samvinnu Íslendinga og Grænlendinga á sem flestum sviðum, sérstaklega þeim sem lúta að hagsmunum barna. Grannþjóðirnar í norðri geta margt hvor af annarri lært, þegar vinátta og virðing eru í fyrirrúmi. Þetta er sjöunda ferð Hróksins og Kalak til Grænlands það sem af er ári. Hátíðir hafa verið haldnar í Tasiilaq, Kulusuk, Ittoqqortoormiit, Nuuk, Kullorsuaq og Upernavik. Í desember verða skák- og sirkushátíðir í Nuuk og Uummannaq, og að vanda lýkur starfsárinu með því að Stekkjarstaur skutlast til Kulusuk með gjafir handa öllum börnum í þorpinu,“ samkvæmt fréttatilkynningu frá Hróknum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson