Jolie farin að hitta aðra menn

Angelina Jolie hefur farið á nokkur stefnumót.
Angelina Jolie hefur farið á nokkur stefnumót. AFP

Leikkonan Angelina Jolie virðist að lokum vera komin yfir fyrrverandi eiginmann sinn, Brad Pitt, og er farin að fara á stefnumót með öðrum karlmönnum. 

Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly hefur leikkonan farið á nokkur stefnumót en ekkert alvarlegt hefur leitt af. 

„Hún er ekki alveg lokuð fyrir hugmyndinni um að kynnast nýjum manni, en það er ekki fremst í forgangsröðuninni hjá henni. Hún einbeitir sér heldur að börnunum, vinnunni sinni og að ná að greiða úr skilnaði hennar og Pitt,“ sagði heimildarmaðurinn. 

Jolie og Pitt giftu sig í ágúst 2014 eftir 12 ára samband en hættu saman í september 2016. Erfiðlega hefur gengið að klára skilnaðinn, en þau náðu sáttum um forræði barna sinna í nóvember í fyrra. Skilnaðurinn er þó ekki enn genginn í gegn, þótt lagalega séð séu þau bæði einhleyp. 

Heimildarmaður Us Weekly bætti við að hún myndi snúa sér betur að stefnumótasenunni þegar skilnaðinum verður lokið. „Hún mun aldrei gifta sig aftur. Henni leið eins og Brad hafi pressað á hana að giftast og það var eitthvað sem hún vildi aldrei gera,“ sagði heimildarmaðurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson