Margir hafa áhuga á Jóhannesi Stefánssyni eftir að hann kom fram í þættinum Kveik á RÚV. Athyglin hefur þó ekki bara breitt úr sér hérlendis heldur víðs vegar um heim. Nú spyr namibíski áhrifavaldurinn Ndilimeke hvort þessi Jóhannes sé á lausu.
Það er kannski ekkert skrýtið því Smartland greindi frá því um daginn að fyrrnefndur Jóhannes væri nauðalíkur leikaranum Dermot Mulroney.
Mulroney var upp á sitt besta á tíunda áratug síðustu aldar. Hann lék þá á móti Juliu Roberts og Cameron Diaz í rómantísku gamanmyndinni My Best Friend's Wedding. Mulroney átti einnig góða spretti í jólamyndinni The Family Stone sem ágætt er að rifja upp á þessum árstíma.
Það er ekki hægt að neita því að þeir Jóhannes og Mulroney eru nokkuð líkir. Nef og munnsvipur Jóhannesar minnir töluvert á Mulroney. Þeir Jóhannes og Mulroney gætu að minnsta kosti verið hálfbræður.
Til að svara spurningu namibíska áhrifavaldsins er svarið já því hann er skilinn að borði og sæng og er því í lausagangi.
This Johanness Stefansson guy, is he single?
— Ndilimeke (@Meke__Eliakim) December 3, 2019
Asking for a friend, 😎