Óskarsverðlaunaleikkonan Emma Stone er trúlofuð Saturday Night Live-leikstjóranum David McCary. McCary birti mynd af þeim á Instagram þar sem Stone sýndi stóran demantshring á baugfingri.
Fyrst fréttist af sambandi þeirra Stone og McCary árið 2017 og hafa þau því verið saman í rúmlega tvö ár. McCary er 34 ára en Stone er 31 árs. Stone hefur ekki verið gift áður en hún var lengi í sambandi með mótleikara sínum úr The Amazing Spider-Man, Andrew Garfield.