Lilla Steinke er Ungskáld Akureyrar 2019, en úrslit í ritlistakeppni Ungskálda voru kunngerð á Amtsbókasafninu á Akureyri síðdegis í dag. Sandra Marín Kristínardóttir hlaut önnur verðlaun og Daniel Ben þriðju verðlaun.
Verðlaunin hlaut Lilla fyrir ljóð sitt Ég heyri rödd þína í rigningunni, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ, sem heldur utan um verkefnið.
Í tilkynningu segir að Ungskáldaverkefnið sé hið eina sinnar tegundar á Íslandi og að markmiðið með því sé að hvetja ungt fólk á aldrinum 16-25 ára til skapandi skrifa. Verkefnið hefur vaxið og dafnað vel á síðustu árum og umfang þess aukist.
Nóg hefur verið um að vera undanfarinn mánuð fyrir ungt fólk með áhuga á ritlist. Í byrjun nóvember var haldin ritlistasmiðja Ungskálda í Verkmenntaskólanum. Leiðbeinendurnir voru rithöfundarnir Stefán Máni og Bryndís Björgvinsdóttir sem jusu úr viskubrunnum sínum og leiðbeindu ungmennunum. Smiðjan var opin öllum á aldrinum 16-25 ára og þátttakendum að kostnaðarlausu.
Í framhaldinu var blásið til ritlistakeppni Ungskálda, sem Lilla Steinke vann sem áður segir. Engar kröfur voru gerðar um að hafa sótt ritlistasmiðjuna, allir á aldrinum 16-25 ára á Norðurlandi eystra höfðu tækifæri til þess að senda inn verk í keppnina. Engar hömlur voru á lengd og formi verka en textinn þurfti þó að sjálfsögðu að vera á íslensku.
Í ár var svo bætt við þeirri nýjung að efna til kaffihúsakvölds Ungskálda en það var haldið fyrr í vikunni og sótt af um 30 manns. Efnileg ungskáld lásu upp eigin verk og annarra og aðrir komu einfaldlega til þess að hlusta og njóta.
Í dómnefnd ritlistakeppninnar að þessu sinni voru þau Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir, bókmenntafræðingur, Kristín Árnadóttir, fyrrverandi íslenskukennari við Verkmenntaskólann á Akureyri, og Björn Þorláksson, rithöfundur og fyrrum bæjarlistamaður.