Gunnar Már Sigfússon einkaþjálfari á eina mest seldu bók landsins, Ketó hormónalausnin, sem hefur hjálpað fjölmörgum að grennast. Þetta finnst Andra Snæ Magnasyni rithöfundi ekki nógu gott og lætur í sér heyra.
„Það er kapp í mér að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri, jú ég er til í að lúffa fyrir Arnaldi, hann er kóngurinn, og fínt að skáka glæpadrottningu. En að Ketó hormónalausnin verði mest selda bók ársins á Íslandi. Aldrei,“ segir Andri Snær Magnason á Twitter.
Gunnari Má Sigfússyni sárnar þetta og kallar Andra Snæ þunnildi.
„Ég get ekki lesið annað út út þessu en að Andra Snæ finnist mikilvægara að við þjóðin lesum reyfara í stað þess að lesa bók sem getur stórbætt heilsuna og lífsgæðin. Þú ert nú meira þunnildið maður,“ segir Gunnar Már Sigfússon á Facebook-síðu sinni.
Það er kapp í mér að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri, jú ég er til í að lúffa fyrir Arnaldi, hann er kóngurinn, og fínt að skáka glæpadrottningu. En að Ketó Hormólausnin verði mest selda bók ársins á Íslandi. Aldrei! pic.twitter.com/KcqckAQb1p
— Andri Snær Magnason (@AndriMagnason) December 12, 2019