Maðurinn sem rassskellti fréttakonuna Alex Bozarjian í beinni útsendingu frá hlaupaviðburði í Savannah Bandaríkjunum er bæði skátaforingi og leiðtogi innan kirkjunnar sinnar.
Maðurinn, Tommy Callaway, var þátttakandi í hlaupinu og sést slá á rass Bozarjian í beinni útsendingu NBC af viðburðinum. Upphaflega var nafn mannsins ekki vitað en nú er komið í ljós að hann er virtur maður í Savannah. Hann hefur verið útilokaður frá öllum hlaupaviðburðum í Savannah.
Callaway hefur sagt opinberlega að hann vilji „leiðrétta ástandið“ en Bozarjian hefur ekki tekið afsökunarbeiðni hans gilda þar sem hann meiddi hana bæði líkamlega og andlega.
Bozarjian sagði í viðtali við The Morning Show að sér hefði liðið illa eftir atvikið þar sem hann reyndi að taka völdin af henni með því að slá hana á rassinn. „Það er ekki í lagi að nýta þér kvenlíkama bara af því þig langar til þess. Það er ekkert grín, hann meiddi mig líkamlega og andlega,“ sagði Bozarjian.
Eftir að Callaway var nafngreindur í fjölmiðlum vestanhafs og útilokaður frá öllum hlaupaviðburðum í Savannah eyddi hann öllum reikningum sínum á samfélagsmiðlum. Hann er foringi í skátunum þar og fer einnig fyrir ungmennahópi í kirkju þar í bæ.
Hér fyrir neðan má sjá þegar Callaway rassskellir Bozarjian í hlaupinu.
To the man who smacked my butt on live TV this morning: You violated, objectified, and embarrassed me. No woman should EVER have to put up with this at work or anywhere!! Do better. https://t.co/PRLXkBY5hn
— Alex Bozarjian (@wsavalexb) December 7, 2019