Eftir fjögurra ára samband er tónlistarfólkið Gwen Stefani og Blake Shelton meira en tilbúið í að gifta sig. Það er þó einn hængur á, Stefani er í kaþólsku kirkjunni.
Kirkjan leyfir sóknarbörnum sínum ekki að gifta sig aftur nema ef fyrra hjónaband er ógilt. Ógilding á hjónabandi tekur langan tíma og ekki víst að það fáist í gegn fyrir dómara.
Stefani og Shelton hafa verið í sambandi síðan 2015 en þau kynntust í þáttunum The Voice þar sem þau voru bæði dómarar.
Stefani var áður gift tónlistarmanninum Gavin Rossdale í 13 ár, en þau skildu árið 2015. Úr fyrra hjónabandi á Stefani þrjá syni á aldrinum 5 til 13 ára.