Ozzy heitir fundarlaunum

Ozzy Osbourne ásamt dóttur sinni Kelly Osbourne og eiginkonunni Sharon …
Ozzy Osbourne ásamt dóttur sinni Kelly Osbourne og eiginkonunni Sharon Osbourne. AFP

Gamla brýnið Ozzy Osbourne hefur heitið verðlaunafé, þremur milljónum króna, fyrir upplýsingar sem leitt geta til þess að munum sem voru í eigu gítarleikarans Randys heitins Rhoads verði skilað en þeim var stolið af safni honum til heiðurs í Hollywood undir lok seinasta mánaðar, á sjálfri þakkargjörðarhátíðinni.

Meðal þess sem hvarf var fyrsti rafmagnsgítar Rhoads sem lést í flugslysi árið 1982 en þeir Ozzy störfuðu saman á þeim tíma.

„Ég er í öngum mínum yfir því að þessum áþreifanlegu minningum um Randy og Delores [móður hans, sem rak tónlistarskólann, þar sem safnið er til húsa] hafi verið stolið frá fjölskyldunni, þannig að ég legg persónulega til fundarlaun,“ sagði Ozzy og bætti við að ekkert kæmi í stað slíkra muna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson