Breski leikarinn Colin Firth og eiginkona hans til 22 ára, hin ítalska Livia Firth, hafa ákveðið að skilja. Firth-hjónin sendu frá sér yfirlýsingu að því er fram kemur á vef People um helgina. Í tilkynningunni eru þau sögð hafa skilið að borði og sæng.
Tilkynningin kemur næstum því tveimur árum eftir að það komst í fréttir að Frú Firth hefði átti í sambandi við annan mann. Á frú Firth að hafa átt í ástarsambandinu á meðan hjónin hættu tímabundið saman. Nú virðast þau hins vegar vera endanlega hætt saman.
Hjónin giftu sig árið 1997 og eiga saman synina Luca sem er 18 ára og Matteo sem er 16 ára. Þau voru síðast mynduð saman í september þegar þau mættu saman á viðburð á tískuvikunni í Mílanó.