Kanye og Jay-Z grófu stríðöxina í afmæli

Kanye West og Jay-Z virtust kátir að sjá hvor annan.
Kanye West og Jay-Z virtust kátir að sjá hvor annan. skjáskot/Instagram

Tónlistarmennirnir Kanye West og Jay-Z virðast hafa grafið stríðsöxina ef marka má myndir úr afmæli tónlistarmannsins Diddy um helgina. 

West og Jay-Z heilsuðust, sáust hlæja og spjalla í afmælinu og sátu fyrir á mynd með afmælisbarninu og tónlistarmanninum Pharrel Williams. Diddy hélt upp á 50 ára afmæli sitt um helgina og var öllu frægasta fólkinu í Hollywood boðið í afmælið. 

West og eiginkona hans Kim Kardashian West og Jay-Z og eiginkona hans Beyoncé Knowles sátu stutt frá hvert öðru í afmælinu. 

West og Jay-Z hafa skotið föstum skotum á hvor annan í gegnum árin. Þeir hafa verið nánir vinir síðan á 10. áratug síðustu aldar þegar þeir unnu saman að tónlist hjá Roc-A-Fella Records. 

Þeir unnu saman að plötunni Watch the Throne árið 2011 en slitnaði upp úr vinskapnum eftir að Jay-Z og Beyoncé mættu ekki í brúðkaup West hjónanna. Þau sendu þó góðar kveðjur til brúðhjónanna á stóra deginum. 

Árið 2016 brjálaðist West á tónleikum sínum og hraunaði yfir Jay-Z og Beyoncé þar sem þau hafi ekki haft samband við þau eftir að brotist var inn á hótelherbergi Kim Kardashian í París og skartgripum stolið. Hann tuðaði einnig yfir því að dætur þeirra hafi ekki enn leikið saman. 

Beyoncé, Jay-Z, Kanye West og Kim Kardashian á BET-verðlaunahátíðinni í …
Beyoncé, Jay-Z, Kanye West og Kim Kardashian á BET-verðlaunahátíðinni í Los Angeles árið 2012. Getty Images For BET

Í kjölfarið gaf Jay-Z út plötu þar sem eitt lagið bar nafnið Kill Jay-Z þar sem hann talaði um hegðun West. Þeir eru einnig sagðir hafa rifist yfir peningum í tenglsum við streymisveituna Tidal. 

Hjónin tvö virtust svo vera aftur komin í samband árið 2017 þegar Jay-Z sagði í viðtali við New York Times Magazine að hann elskaði Kanye West en að þeir ættu eftir að ræða nokkur málefni. 

Í fyrra birti West svo mynd af Jay-Z og Beyoncé og skrifaði að þau væru fjölskylda hans. Og nú virðist svo allt vera fallið í ljúfa löð á milli þeirra. 

View this post on Instagram

Kanye and Jay Z reunited tonight at Diddy’s birthday party!

A post shared by Kim Kardashian Snapchat (@kimkardashiansnap) on Dec 15, 2019 at 2:36am PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson