Búið spil hjá Tatum og Jessie J

Channing Tatum og Jessie J eru hætt saman.
Channing Tatum og Jessie J eru hætt saman. Samsett mynd

Leikarinn Channing Tatum og tónlistarkonan Jessie J eru hætt saman eftir aðeins árs langt samband.

Fyrst heyrðist af sambandi þeirra í október í fyrra og þau sáust síðast saman í október á þessu ári. 

„Það var ekkert drama. Þau ákváðu bara að leiðir þeirra myndu skilja núna og eru enn þá góðir vinir,“ sagði heimildarmaður People

„Channing og Jessie eru með mismunandi forgangsröðun og það fer illa saman. Þau áttu skemmtilegan tíma saman, en sambandið virkaði ekki lengur. Channing þarf að vera mikið í Los Angeles svo hann geti verið með dóttur sinni Everly. Jessie vill heldur vera í Bretlandi,“ sagði heimildarmaðurinn. 

Tatum á eina dóttur, Everly, úr fyrra hjónabandi með leikkonunni Jennu Dewan. Illa hefur gengið í forræðisdeilu þeirra Tatum og Dewan á síðustu mánuðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant