Gestir og gangandi í miðbæ Hafnarfjarðar gátu í dag fylgst með þeim Eddu Björgvinsdóttur og Þórhalli Sigurðssyni, sem þekktastur er sem Laddi, fremja bankarán í útibúi Íslandsbanka við Strandgötu. Var ránið hluti af atriði í myndinni Hófi amma, sem verið var að skjóta í dag.
Þegar ljósmyndara mbl.is bar að garði voru þar tveir lögreglubílar með blikkandi ljós og tökulið, en Edda og Laddi höfðu nýlega lokið leik sínum. Þá var talsvert um áhugasama vegfarendur sem virtu umstangið fyrir sér.