Drukku frá Beyoncé þegar íslenska vatnið kláraðist

Jennifer Aniston og Reese Witherspoon með kampavín Beyoncé og Jay-Z.
Jennifer Aniston og Reese Witherspoon með kampavín Beyoncé og Jay-Z. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Jennifer Aniston var mjög ánægð með vinkonu sína Reese Witherspoon þegar hún reddaði þeim kampavíni á Golden Globe-hátíðinni. Aniston segir í sögu á Instagram að vatnið á borðinu þeirra hafi klárast en Witherspoon dó þá ekki ráðalaus og reddaði kampavíni. 

Vatnið sem kláraðist var frá íslenska vatnsframleiðandanum Icelandic Glacial. Var vatn frá framleiðandanum á borðum stjarnanna á hátíðinni auk þess sem stjörnurnar fengu íslenskt vatn á rauða dreglinum. 

Leikkonurnar Aniston og Witherspoon kunnu greinilega vel að meta vatnið, svo vel að það kláraðist. Þegar það gerðist bað Witherspoon Beyoncé og Jay-Z um kampavínið þeirra sem stjörnuhjónin gáfu þeim eins og sást á samfélagsmiðlum þeirra Aniston og Witherspoon. Mögulega hafa Beyoncé og Jay-Z bara haldið sig í íslenska vatninu. 

Íslenska vatnið kláraðist.
Íslenska vatnið kláraðist. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson