Leikkonan Katie Cassidy og eiginmaður hennar Matthew Rodgers sóttu um skilnað í Los Angeles í gær. Cassidy og Rodgers gengu í það heilaga í desember árið 2018 og hafa því aðeins verið gift í tæpa 13 mánuði.
Cassidy er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Arrow en hún er einnig dóttir tónlistarmannsins og leikarans David Cassidy.
Cassidy og Rodgers eiga ekki börn saman svo skilnaðurinn ætti að ganga hraðar fyrir sig en ella. Þau höfðu verið saman síðan árið 2017 en þau trúlofuðu sig 5. júní 2017 og sem fyrr segir giftu sig í desember 2018.