Auglýsa eftir leikhússtjóra

Borgarleikhús við Listabraut.
Borgarleikhús við Listabraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur (LR) hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Stefnt er að því að viðkomandi hefji störf við undirbúning leikársins 2021-2022 í ársbyrjun 2021 en taki svo formlega við stjórn leikhússins í júlí 2021. Frétt um málið birtist í Morgunblaðinu í morgun. 

Kristín Eysteinsdóttur, leikhússtjóri Borgarleikhússins, telur það mikið heillaskref að staðan sé auglýst með svona góðum fyrirvara. Segir hún það bera vott um faglega nálgun stjórnar enda séu sambærilegar stöður erlendis auglýstar að minnsta kosti ári áður en nýr leikhússtjóri tekur við. „Með þessu móti getur nýr leikhússtjóri frá fyrsta degi sett skýran svip á starfsemi leikhússins,“ segir Kristín, en seinna ráðningartímabil hennar rennur út í júlí 2021.

Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar LR, bendir á að aukinn fyrirvari á ráðningu leikhússtjóra auðveldi umsækjendum sem þegar eru í verkefnum heima eða erlendis að skipuleggja framtíð sína.

Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu
Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Borgarleikhúsið er þekkt fyrir að vera framsækið leikhús og hefur gengið afar vel undanfarin ár undir forystu Kristínar. Stjórnin telur mikilvægt að laða að hæfileikaríkt sviðslistafólk og fara ótroðnar slóðir við ráðningu stjórnenda, ekki síst í ljósi þess hve starfsumhverfi þeirra hefur breyst að undanförnu með fjölgun tækifæra á alþjóðavettvangi. Þannig telur stjórnin að breytt tilhögun við ráðningu leikhússtjóra auki líkurnar á áhugaverðum umsóknum og tryggi að listrænn metnaður verði héðan í frá sem hingað til í algjöru fyrirrúmi.“

Starf leikhússtjóra Borgarleikhússins verður auglýst til umsóknar í dag, 16. janúar, og er umsóknarfrestur til 30. janúar 2020. Auglýsinguna má nálgast hér: https://www.mbl.is/atvinna/5721/

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant