Iceland Airwaves tilnefnd til NME

Reykjavíkurdætur á Iceland Airwaves.
Reykjavíkurdætur á Iceland Airwaves. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin er tilnefnd sem besta litla tónlistarhátíðin á NME-verðlaunahátíðinni 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Airwaves.

NME-verðlaunahátíðin hefur verið haldin árlega síðan 1953 af NME-tímaritinu sem á sér tæplega sjö áratuga langa sögu og í ár fer hún fram í London í 02 Academy í Brixton. 

Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk tónlistarhátíð hefur verið tilefnd til verðlaunanna. 

NME kom á Iceland Airwaves í fyrra eftir nokkurra ára hlé og þau höfðu eftirfarandi að segja um hátíðina:

„Iceland Airwaves gæti verið svalasta hátíð ársins. Já, hún fer fram í rokinu í Reykjavík í nóvember (sem meira að segja tekur á Íslendingana) en líka vegna þess að hún er alltaf nokkrum skrefum á undan. Í staðinn fyrir að henda saman tónlistaratriðum eingöngu til að selja miða, hefur Airwaves minnkað úrvalið í ár til að geta sett saman ótrúlega framúrstefnulega og faglega dagskrá,“ samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Airwaves.

Sjö hljómsveitir sem komu fram á Iceland Airwaves síðast voru valdar á The NME 100: Essential New Artists for 2020”-listann frá NME.

Hátíðirnar sem eru tilnefndar hjá NME fyrir bestu litlu tónlistarhátíðina eru:

  • Bluedot (Bretland)
  • End Of The Road (Bretland)
  • Iceland Airwaves (Ísland)
  • Kendal Calling (Bretland)
  • ya (Noregur)

Iceland Airwaves kynnir fyrstu tónlistarmennina sem koma fram 2020 um miðjan febrúar, stuttu eftir að NME-verðlaunaafhendingin fer fram.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant