Rík menning og fjölbreytileg

Áslaug Torfadóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís.
Áslaug Torfadóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frönsk kvikmyndahátíð hefst á morgun, föstudag, í Bíó Paradís og verður að vanda boðið upp á gott úrval nýlegra og sígildra kvikmynda. Hátíðin á 20 ára afmæli í ár og verður nú haldin í fyrsta sinn í Bíó Paradís. Henni lýkur 2. febrúar og auk kvikmyndasýninga verða sérviðburðir á dagskrá, þeirra á meðal glæpakvöld þar sem rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir ávarpar gesti á undan sýningum á tveimur sígildum, svarthvítum glæpamyndum leikstjórans Henri-Georges Clouzot.

Úr Fögru veröld, Belle epoque.
Úr Fögru veröld, Belle epoque.

Áslaug Torfadóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís, segir kvikmyndir hátíðarinnar eiga það sameiginlegt að hafa vakið mikla athygli og lof erlendis. Þeirra á meðal sé nýjasta kvikmynd Romans Polanski, J'accuse eða Ég ákæri, sem fjallar um höfuðsmanninn Alfred Dreyfus sem var ranglega dæmdur fyrir landráð og dæmdur í lífstíðarfangelsi á Djöflaeyju, og Portrait de la jeune fille en feu, Mynd af brennandi stúlku sem hlaut mikið lof gagnrýnenda í fyrra og rataði víða á lista yfir bestu kvikmyndir ársins. Í henni segir af ungri listakonu sem tekur að sér að mála portrett af tilvonandi brúði ríkrar fjölskyldu og verður ástfangin af fyrirsætunni.

Úr kvikmynd Polanski, J'accuse eða Ég ákæri.
Úr kvikmynd Polanski, J'accuse eða Ég ákæri.

Fagra veröld opnunarmyndin

Opnunarmynd hátíðarinnar er La belle époque, eða Fagra veröld, eftir leikstjórann Nicolas Bedos, gamanmynd sem hefur verið að gera það gott, að sögn Áslaugar. „Hún er um mann á sjötugsaldri sem er svolítið úr takti við nútímann og finnst heimurinn vera að fara fram úr honum. Hann þráir að komast aftur til fortíðarinnar þegar allt var einfaldara,“ segir Áslaug. Manninum er boðið dag einn að endurlifa fortíð sína, með leikurum og sviðsmyndum og öllu tilheyrandi. „Hún er mjög fyndin og skemmtileg og verið að spila með þessa fortíðarþrá sem er svo ríkjandi í dag, þrá eftir einhverjum gömlum tíma sem var kannski ekkert endilega betri en nútíminn,“ segir Áslaug.

Úr teiknimyndinni Dilili í París.
Úr teiknimyndinni Dilili í París.

Sólveigar Anspach-verðlaunin veitt í fjórða sinn

Ellefu myndir verða sýndar á hátíðinni og þar af er ein teiknimynd, Dilili í París sem verður sýnd með íslenskum texta. Á fyrrnefndu glæpakvöldi verða sýndar tvær sígildar glæpamyndir, L'assassin habite au 21 eða Morðinginn býr í nr. 21 og Les diaboliques eða Forynjurnar og mun Yrsa flytja erindi fyrir sýningu beggja og fjalla sérstaklega um glæpahefðina í kvikmyndum og þá sérstaklega frönskum glæpamyndum.

Heimildarmynd hátíðarinnar nefnist Le vin se lève eða Guðaveigar og fjallar um franska vínframleiðendur sem taldir eru leiðandi í því að vinna vínið með lífrænum hætti og náttúrulegum aðferðum framleiðsluháttum og með sjálfbærni að leiðarljósi, en tæp 3% um þrjú þúsund vínbænda í Frakklandi vinna með þeim hætti. Að sýningu lokinni verður sýningargestum boðið upp á vínsmökkun á frönskum náttúruvínum hjá Dóra DNA í samstarfi við vínbarinn Port 9.

Af öðrum viðburðum ber svo að nefna afhendingu Sólveigar Anspach-verðlaunanna 30. janúar sem Franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík efna til með stuðningi Reykjavíkurborgar, Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Tilgangurinn með verðlaununum er að heiðra minningu Sólveigar Anspach og hvetja ungar konur til dáða í kvikmyndaleikstjórn og eru verðlaunin veitt konum fyrir fyrstu stuttmynd þeirra á frönsku og íslensku. Verðlaunin verða veitt í fjórða sinn og verða þrjár stuttmyndir á frönsku heiðraðar og þrjár á íslensku.

Úr Mynd af brennandi stúlku sem segir af forboðinni ást.
Úr Mynd af brennandi stúlku sem segir af forboðinni ást.

Heltekinn af rúskinnsjakka

Sem fyrr sagði eru ellefu myndir á dagskrá hátíðarinnar og auk þeirra sem þegar hafa verið nefndar eru það Le daim eða Rúskinn sem fjallar um mann sem er heltekinn af rúskinnsjakkanum sínum, eyðir ævisparnaðinum og leiðist út í glæpi til að bæta fyrir tapið; Matthias & Maxime sem er kanadísk og segir af vináttu tveggja ungra manna sem stefnt er í hættu þegar þeir þurfa að leika í stuttmynd saman og kyssast. Deux moi eða Tvö sjálf fjallar um ungt fólk í París og varpar fram þeirri spurningu hvort ekki þurfi að elska sjálfan sig áður en maður getur elskað einhvern annan.

Ellefta kvikmyndin er hin sígilda Amélie frá árinu 2001 sem segir af gengilbeinu sem helgar líf sitt því að gleðja aðra, finnur ástina og lætur drauma sína rætast.

Rík og fjölbreytt menning

„Það er gaman að fá að halda hátíðina hér í Bíó Paradís á tuttugasta aldursári hennar,“ segir Áslaug og er í framhaldi spurð að því hvers vegna fólk eigi að sækja Franska kvikmyndahátíð.

„Það er nú bara til þess að kynna sér annan menningarheim. Frönsk menning er náttúrlega afar rík og fjölbreytt og á Íslandi hefur alltaf verið mikill áhugi fyrir Frakklandi og frönskum kvikmyndum,“ svarar hún og bendir á þá fjölbreytni sem einkenni hátíðardagskrána. Á henni megi finna allt frá klassík yfir í glænýjar kvikmyndir sem hlotið hafi lofsamlegar viðtökur gagnrýnenda sem og kvikmyndaunnenda.

Hátíðin stendur yfir í tíu daga og fer miðasala fram á bioparadis.is og tix.is. Áslaug bendir á að árs- og klippikort kvikmyndahússins gildi líka á hátíðina og að heildardagskrá og frekari upplýsingar megi finna á vef kvikmyndahússins, bioparadis.is.

Hér má sjá kynningarmyndband fyrir hátíðina:

Amélie er frönsk klassík.
Amélie er frönsk klassík.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson