Sýningin í hálfleik Ofurskálarinnar er oft hápunktur kvöldsins fyrir marga. Í ár sáu tónlistarkonurnar Shakira og Jennifer Lopez um að skemmta áhorfendum á vellinum og heima í stofu. San Francisco 49ers og Kansas Chiefs kepptu um bikarinn og fóru Kansas-menn með sigur af hólmi, 30-21.
Þær fengu nokkra óvænta gesti með sér á sviðið, þar á meðal rapparann Cardi B og reggísöngvarann J Balvin.