Heimildarmynd um bitcoin-málið í bígerð

Heimildarmynd er nú í bígerð um bitcoin-málið svokallaða.
Heimildarmynd er nú í bígerð um bitcoin-málið svokallaða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson undirbýr nú gerð heimildarmyndar um bitcoin-málið svokallaða. Heimildarmyndin mun snúast um Sindra Þór Stefánsson og tvo aðra ónafngreinda Íslendinga sem sakfelldir voru fyrir aðild sína að þjófnaði á tölvubúnaði í desember 2017. 

Bitcoin-málið vakti heimsathygli á sínum tíma og einna helst strok Sindra frá fangelsinu að Sogni vorið 2018. Málið varðar stórfelldan þjófnað á tölvubúnaði úr þremur gagnaverum hér á landi í desember 2017 og janúar 2018. Tölvurnar voru notaðar til að grafa eftir rafmyntinni bitcoin og hefur hluti tölvubúnaðarins ekki enn fundist. Sjö voru sakfelldir í tengslum við málið og hlaut Sindri Þór þyngsta dóminn en hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Í frétt Screen Daily um heimildarmyndina kemur fram að hluti hennar verði leikinn og að Sigurjón ætli sér að láta þremenningana endurleika hluta af mikilvægum atriðum í málinu. 

Framleiðslufyrirtæki Palomar Pictures, sem er í eigu Sigurjóns, kemur að framleiðslu heimildarmyndarinnar auk Sýnar. Gert er ráð fyrir að tökur hefjist í apríl á þessu ári og fari fram á Íslandi, Spáni og í Bandaríkjunum. 

Fjallað hefur verið ítarlega um málið í erlendum fjölmiðlum en Sindri Þór var í ítarlegu viðtali við Vanity Fair í nóvember á síðasta ári þar sem hann sagði frá þjófnaðinum.

Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi í Hollywood.
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi í Hollywood. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson