Áttaði sig á mistökunum eftir einn dag í hjónabandi

Pamela Anderson og Jon Peters greindu frá sambandsslitum eftir 12 …
Pamela Anderson og Jon Peters greindu frá sambandsslitum eftir 12 daga hjónaband. AFP

Strandvörðurinn fyrrverandi, Pamela Anderson, gifti sig í janúar en hjónabandið varði í einungis 12 daga. Heimildarmaður Page Six segir að hjarta leikkonunnar hafi verið allt of opið eftir andlega hreinsun á Indlandi þegar hún ákvað að gifta sig. And­er­son og fram­leiðand­inn Jon Peters gengu í hjónaband 20. janúar.

Anderson var nýkomin heim frá Indlandi þar sem hún dvaldi í heilan mánuð. Var Anderson á Indlandi í einskonar andlegri hreinsun. Hjarta hennar var mjög opið eftir ferðina en kannski aðeins of opið í ljósi atburða. 

„Pamela er ekki á sömu bylgjulengd og annað fólk. Hún er með risastórt hjarta og ást hennar er stór, hröð og mikil,“ sagði heimildarmaðurinn. „Ég elska þig, giftum okkur,“ sagði Peters við Anderson sem sagði bara allt í lagi. 

Anderson og Peters vörðu aðeins saman þremur dögum áður en þau gengu í hjónaband í janúar. Þau höfðu þó þekkst lengi og áttu í stuttu sambandi fyrir 30 árum. Er Anderson sögð hafa áttað sig á að hún hefði gert hræðileg mistök þegar hún var búin að vera gift manni sínum í einn og hálfan dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler