Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Bergmál, var sýnd í gærkvöldi á kvikmyndahátíð hins virta samtímalistasafns MoMA í New York. Bergmál hlaut aðalverðlaun á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss í haust. Nokkru síðar fékk myndin verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíð í Valladolid á Spáni.