Körfuboltamaðurinn Lebron James fékk sér húðflúr til að heiðra minningu vinar síns, Kobe Bryant, nú á dögunum. Bryant lést í skelfilegu þyrluslysi ásamt 13 ára gamalli dóttur sinni í lok janúar.
James er ekki sá eini sem hefur fengið sér húðflúr til að minnast Bryant en það hafa líka Odell Beckham Jr., rapparinn 2 Chains og Shareef O'Neal gert. Shareef er sonur körfuboltamannsins Shaquille O'Neal sem var liðsfélagi Bryant um tíma.
2 Chainz fékk sér tölu Bryant á körfuboltavellinum, 24, á hnén. Beckham Jr. fékk sér andlitsmynd af Bryant á kviðinn og Shareef fékk sér tölurnar 24 og 8, auk körfuboltatreyju Bryants.
View this post on Instagram@obj got a tattoo of Kobe 🐍 @brgridiron
A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport) on Feb 8, 2020 at 5:48pm PST