Friðrik krónprins Danmerkur gekkst undir minni háttar aðgerð á spítala í Danmörku í gær að því fram kemur á heimasíðu dönsku konungsfjölskyldunnar. Prinsinn meiddi sig á vinstri öxl þegar hann var í skíðafríi í síðustu viku.
Í tilkynningunni kemur fram að Friðrik hafi verið í Sviss þegar óhappið átti sér stað en aðgerðin var gerð á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Aðgerðin var einföld og gekk samkvæmt áætlun. Axlarmeiðslin hafa ekki áhrif á störf Friðriks.
Fjallað er um meiðslin í dönskum miðlum og rifjaðar upp allar þær aðgerðir sem prinsinn hefur gengist undir. Er það meðal annars rifjað upp þegar prinsinn sem er nú 52 ára lenti í trampólínslysi árið 2016. Átti slysið sér stað í leikfimissal þar sem Friðrik var í einkaerindum og þurfti hann að ganga með hálskraga margar vikur eftir á.
Á vef Ekstra Bladet gagnrýnir konunglegur spekúlant áhættusama hegðun Friðriks sem þurfi að fara varlega í ljósi stöðu hans. Segir hann Friðrik meiða sig aftur og aftur og um sé að ræða mann sem geti ekki meðtekið góð ráð, hlustað og slakað á.