Dóttir Spielbergs í klámið

Leikstjórinn Steven Spielberg.
Leikstjórinn Steven Spielberg. AFP

Mikaela Spielberg, 23 ára gömul dóttir kvikmyndaleikstjórans Stevens Spielbergs og eiginkonu hans Kate Capshaw, er komin í klámbransann. Í viðtali við bandarísku útgáfu The Sun segist Mikaela vera byrjuð að framleiða sín eigin klámmyndbönd sem sýna bara hana. 

Mikaela Spielberg sem var ættleidd af hjónunum þegar hún var smábarn segir að foreldrar hennar hafi verið áhugasamir en ekki reiðir þegar hún sagði þeim frá nýja starfsferlinum í gegnum samskiptaforritið FaceTime. 

Unga konan ætlar ekki einungis að framleiða myndbönd þar sem hana langar einnig til að koma fram sem fatafella en segist fyrst þurfa að ná sér í tilskilin leyfi. 

Mikaela Spielberg segist lýsa sjálfri sér sem kynveru og greindi fyrst frá nýja starfsferli sínum í þessum mánuði. 

„Ég varð þreytt á því að geta ekki hagnast á líkama mínum og í sannleika sagt þá var ég þreytt á því að vera sagt að hata líkama minn. Ég var líka þreytt á því að vinna á hverjum degi án þess að það fullnægði sál minni. Mér finnst að með því að því að vinna að þessu að ég geti „fullnægt“ öðru fólki.“

Mikaela Spielberg er loksins ánægð með stór náttúruleg brjóst sín í nýja starfinu sínu. Hún segir að hún geti lagt áherslu á myndbönd tengd ákveðnu blæti en ætlar sér ekki að stunda mök við annað fólk af virðingu við 47 ára gamlan unnusta sinn. 

Hollywood-erfinginn segist vilja verða rík og segist ekki vilja reiða sig fjárhagslega á auðæfi foreldra sinna. 

Steven Spielberg og Kate Capshaw.
Steven Spielberg og Kate Capshaw. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant